Félag tónskálda og textahöfunda , FTT , var stofnað árið 1981 af höfundum nýgildrar tónlistar á Íslandi.
Félagið starfaði óformlega fyrstu tvö árin, en frá 1983 hefur það víða látið til sín taka og eflt samstöðu meðal höfunda.
Í FTT eru nú um 250 höfundar og er félagið annað tveggja aðildarfélaga STEFs, Sambands tónskálda og eigenda flutningsréttar.
Tilgangur FTT er m.a. að standa vörð um höfundarétt íslenskra tónskálda og textahöfunda, að gæta hagsmuna félagsmanna á sviði höfundaréttar, að efla samstöðu meðal félagsmanna og að stuðla að tíðari flutningi og aukinni útbreiðslu á verkum félagsmanna. Félagsmenn geta orðið allir þeir, sem samið hafa tónverk og / eða texta við tónverk og fengið verk sín flutt opinberlega, enda hafi þeir veitt STEFi umboð til að innheimta höfundarréttargjöld sín.
Félagsmenn FTT eru ýmist félagar eða aðalfélagar. Þeir einir eru aðalfélagar, sem fengist hafa við tónsmíðar og / eða textagerð um minnst þriggja ára skeið og njóta umtalsverðra tekna af flutningi verka sinna.
Félagsmenn FTT hafa m.a. rétt til að sækja um styrki, sem veittir eru árlega úr Tónskáldasjóði FTT, til að vinna að sköpun , útgáfu og útbreiðslu tónlistar sinnar. Hér á heimasíðunni getur að auki að líta lista yfir nokkra sjóði sem veitt hafa styrki til sköpunarverka á sviði tónlistar , textagerðar og margvíslegrar menningarstarfsemi.
FTT miðlar upplýsingum til félagsmanna sinna og veitir þeim aðstoð og ráðgjöf. Félagið hefur gefið út Íslensk dægurlög, 6 nótnahefti með efni eftir félagsmenn, og söngbókina 250 íslenskir dægurlagatextar.
Félagið á aðild að eftirtöldum samtökum
STEF - Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar
BÍL - Bandalag íslenskra listamanna
NPU - Nordisk Popularauktorunion
CIAM - International Council of Authors and Composers of Music |